Spánardrósin
03.08.2006 20:15:32 / jonahlin

Jæja, góðir hálsar...

Ég tók þá stóru ákvörðun að fá mér nýjan hýsil fyrir bloggið mitt.

Nú blogga ég á http://spanardrosin.bloggar.is

Þakka samveruna hérna og sjáumst á nýju bloggi ;)

Laterz.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 16:11:49 / jonahlin

Miami Vice fyrr og síðar...

Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?

Don Johnson eða Colin Farrell?

Philip Michael Thomas eða Jamie Foxx?

Fyndið að sjá hvað var flott fyrir 20 árum síðan og hvað er cool í dag. Ég missti ekki af einum þætti sem krakki, ekki séns! Þegar að ég heyrði að það væri verið að gera mynd eftir þáttaröðinni vinsælu þá glotti ég nú út í annað og sá Don Johnson fyrir mér í hvítu jakkafötunum og alltof stuttum buxum og berfættur í skónum...og hugsaði með mér..."Hvernig ætli að Colin Farrell taki sig út þannig?" ;) hehehehe

Anyways, langar að sjá myndina...svona for old times sake ;)

Laterz.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 16:35:46 / jonahlin

Vinirnir á "hold"...:/

Þegar að maður situr við vinnu sína og hefur mest lítið að gera þá getur maður dottið inn í hina ýmsu þanka. Ég fór allt í einu að hugsa um hvað það eru margar af vinkonum mínum og vinum sem að ég hef ekki séð heillengi og ekkert heyrt í í lengri tíma heldur. Af hverju þetta stafar veit maður hins vegar ekki. Það er alltaf planið að hittast, gera eitthvað sniðugt saman, fara á kaffihús, bíó, eitthvað...þó það væri ekki nema að setjast niður heima við og spjalla. En alltaf flýgur tíminn einhvern veginn frá manni og það á mjög dularfullan hátt. Áður en maður veit af eru liðnar margar vikur ef ekki mánuðir síðan að maður heyrði í vini eða vinkonu.

Þegar að maður var ungur og áhyggjulaus hafði maður ekkert betra að gera en að taka upp tólið, hringja í vinina og taka strætó eitthvert...í Kringluna, Laugaveginn, Mjóddina...heim til einhvers, í bíó, hangsa einhvers staðar á róluvelli og sveifla sér í rólu og spjalla. Fyndið hvernig aðstæður breytast eftir því sem að maður verður eldri. Nú erum við flest komin með maka og jafnvel börn og bú og það tekur þennan vinatíma frá manni að vissu leyti. Maður getur alla vega ekki eitt öllum dögum í kæruleysi eins og forðum daga ;) Ég væri samt alveg til í að setjast í eina rólu eða svo með kærum vinum og sveifla mér annað slagið og kjafta saman :haha:

Þó svo að ég sé ekki nærri því nógu dugleg við að hafa samband við vini og vandamenn þessa dagana þá er ég svo þakklát fyrir að eiga þá að. Mér þykir það kostur að eiga vini sem að sýna því skilning að maður hringi ekki nógu oft. Ég sýni þann skilning gagnvart þeim líka :haha: Þó svo að líði margir dagar, vikur...já, jafnvel mánuðir á milli þess sem að maður heyrir í sumum þeirra...þá er samt alltaf tilfinningin sú að maður hafi heyrt í viðkomandi í gær. Það finnst mér frábært og einstakt :haha: Kannski að maður reyni að lyfta tólinu og heyra kunnuglegar raddir oftar ;)

Laterz.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 11:51:01 / jonahlin

Good times...:)

Ég er alveg við það að loka kofanum og stökkva út í sólina eins og kýrnar gera á vorin. Nú er ég að leysa af í vinnunni og er við símaborðið fyrir Slökkviliðið, Landsbjörg, Landhelgisgæsluna og fleira. Eintóm gleði eða þannig. Ég verð að segja eins og er...hér er ekki mikið að gerast yfir daginn. Á þessum tíma árs eru líka flestir í sumarfríi þannig að það er extra rólegt svo að ég er bara hin rólegasta. Svo finnst mér frekar súrt að þurfa að sitja við risavaxinn glugga og horfa út í blíðuna sem að maður hefur beðið eftir í allt sumar en komast ekki út í hana :S

Annars er ágætt að frétta af mér og mínum. Helgin síðastliðin var mjög góð og heilmikið að gera fyrir okkur Gunnar. Á föstudagskvöldið fórum við til Ólafar, vinkonu minnar sem að býr í Bandaríkjunum en er eins og er hér á landi í heimsókn. Hún bauð í smá party á föstudagskvöldið og var þar heilmikið fjör fram eftir nóttu. Það var líka gaman að hitta hana eftir allan þennan tíma...ég held að það sé u.þ.b. eitt og hálft ár síðan að ég hitti hana síðast enda var mikið spjallað...eða eins og hægt var í teitinu ;)

Á laugardaginn vöknuðum við kát og glöð, við Gunnar...enda komið ár síðan að við kynntumst og það er ekki hægt annað en að fagna því með einum kossi eða svo. Við fögnuðum deginum reyndar ekki á paralegan hátt, þ.e.a.s. við vorum ekki bara "tvö ein" að sniglast allan daginn.  Okkur var t.d. boðið í mat til Erlu systur og að sjálfsögðu þáðum við það boð. Elín Klara varð 14 ára í vikunni og þá varð nú að halda aðeins upp á það. Við borðuðum grillmat af bestu gerð og sötruðum bjór með, sátum á svölunum og sleiktum smá sól og kjöftuðum saman :) Nú, eftir matinn fórum við svo heim og tókum okkur til fyrir næstu skemmtun. Það var annað party sem að okkur var boðið í og í þetta skiptið var það heima hjá Pálma, vini hans Gunnars en hann var að halda upp á afmæli sitt. Það  var margt um manninn hjá Pálma og frú og heilmikið fjör í kofanum fram eftir nóttu. Við Gunnar stauluðumst heim undir morgun, sátt og ánægð með skemmtunina þennan dag :)

Sunnudagurinn var svo tekinn í algjöra leti. Sófinn var viðkomustaðurinn og það var bara nokkuð notalegt. Gunnar þurfti svo að fara að vinna um kvöldið og ég var búin að ákveða að taka allt í gegn á meðan hann væri að vinna. Það varð nú ekki mikið úr enda daman uppgefin eftir tveggja daga djamm og skemmtilegheit. Ég þreif reyndar stofugluggann að utan og innan...það er nú afrek út af fyrir sig ;)

Svo er það bara harkan núna...vinnan...kannski ekki mikil harka en það er erfitt að sitja inni á svona dögum. Mér finnst að það ætti að vera í kjarasamningum okkar lög um svona daga..."öll fyrirtæki og stofnanir skulu vera lokuð á sólardögum á Íslandi, enda ekki oft sem að sólin kíkir yfir landið..."

Anyways, læt þetta duga í bili.

Laterz.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 16:06:48 / jonahlin

Sprengisandur um miðja nótt

Helgin er alveg að skella á. Bara smá stund eftir í vinnunni og svo frí í tvo daga. Það er alltaf gott að fá helgarfrí. Það eru meir'að segja plön fyrir þessa helgi. Í kvöld er ég að fara til Ólafar, vinkonu minnar sem að er búsett í Bandaríkjunum en er í heimsókn núna á klakanum í tvær vikur. Maður verður að sjálfsögðu að sjá framan í skvísuna fyrst að maður hefur ekki færi á að sjá hana þegar að manni hentar :) Svo á morgun er matarboð hjá Erlu systur annað kvöld í tilefni þess að Elín Klara varð fjórtán ára í vikunni :) Það verður gaman að hittast aðeins. Reyndar á Erla ekki von á góðu frá mér, óþekktarormurinn...

Þannig er mál með vexti að Erla, mín elskulega stóra systir, fór í ferðalag með vinkonu sinni og voru þær á Akureyri yfir eina nótt. Þetta er varla frásögu færandi nema hvað...ég heyrði í Erlu í gær og þá voru þær að fara að leggja í hann og áætlaður komutími til Reykjavíkur var klukkan ellefu í gærkvöldi. Þær ætluðu sko að fara Sprengisandinn. Ég hugsaði ekkert meir um það en ég þurfti svo að koma við hjá henni í gær til að ná í einhverja pappíra sem að mig vantaði. Ég kem heim til Erlu þegar að klukkan er orðin hálftólf um kvöldið og ekkert bólaði á Erlu. Við reyndum að hringja í hana en síminn var utan þjónustusvæðis. Ég settist aðeins niður og spjallaði við krakkana hennar áður en ég fór og sótti Gunnar í vinnuna. Ég reyndi að hringja aftur í Erlu á leiðinni til Gunnars en það var sama sagan...ekkert símasamband. Ég ákvað nú að hafa ekki áhyggjur af þessu alveg strax, fór og sótti Gunnar og fór heim. Svo hringdi ég í Elínu Klöru og sagði henni að hafa ekki áhyggjur af mömmu sinni, hún hefði eflaust tafist smá en mundi skila sér fyrir rest. Ég verð nú að viðurkenna að mér stóð ekki alveg á sama samt og hringdi aftur í Erlu en allt kom fyrir ekki..."síminn er utan þjónustusvæðis..."

Ég dottaði í sófanum eftir að við komum heim en rumskaði aftur klukkan hálfþrjú í nótt...og hringdi í Erlu. Aftur kom kellingin á línuna..."Í augnabliknu er síminn utan þjónustusvæðis..." Ég varð hálf smeik en hugsaði samt með mér að Erla væri nú örugglega komin heim, hún hefði bara gleymt að kveikja á símanum. Með það fór ég í rúmið og lagðist undir sæng. Þá fór nú allt að herja á mig..."Ætli að það sé í lagi með þær? Kannski hefur sprungið á jeppanum þeirra...og þær eru á Sprengisandi...og það keyrir enginn á Sprengisandi um miðja nótt. Þá eru þær fastar þar og enginn sími og ekki neitt! Sjitt, hvað ef að bíllinn hefur farið út af...þær gætu verið stórslasaðar! Guð minn góður, þær gætu verið dánar oní einhverjum skurði á Sprengisandi!!!!!!! Sjitt sjitt sjitt, hvað á ég að gera??? Á ég að ræsa björgunarsveit á eftir þeim??? Ef þær eru slasaðar þá komast þær ekki neitt...það þarf einhver að hjálpa þeim! Þær eru týndar!!!!!!!!!!!! OH MY GOD!!!!!!!" 8| Svona voru hugsanir mínar í klukkutíma og minnstu munaði þegar að ég var orðin hvað æstust, að ég risi úr rekkju og hringdi í björgunarsveit og segði þeim að bruna og finna systur mína og vinkonu hennar...þær væru einhvers staðar á Sprengisandi og líklegast stórslasaðar ef ekki hreinlega steindauðar!

Mér tókst fyrir rest að róa mig og sofnaði loksins með það í huga að Erla væri heima hjá sér í sínu rúmi og slökkt væri á símanum. Ég vonaði það alla vega. Ég sofnaði ekki fyrr en um fjögur leitið í nótt. Það fyrsta sem að ég gerði svo þegar að ég vaknaði í morgun var að hringja í hana og viti menn, það var samband á símanum. Ég reiknaði með að hún væri nú sofandi þannig að ég heyrði ekki í henni þá en var voða létt að vita af henni í siðmenningunni. Hún hringdi svo í mig þegar að hún vaknaði og sagði mér frá óförum sínum...að þær hefðu fengið þær upplýsingar að það tæki ekki nema 3, mesta lagi 4 tíma að keyra Sprengisand...en þær voru rúma 7 tíma að fara þarna yfir því að vegurinn er eins og versta þvottabretti og svo var auðvitað niðamyrkur þarna um miðja nótt þannig að þær keyrðu á 30km/h mest alla leiðina. Ég sagði henni frá hvað ég hefði orðið áhyggjufull um nóttina og er eiginlega búin að ákveða það að eftir að ég er búin að kyssa Elínu Klöru til hamingju með daginn á morgun þá ætla ég að flengja Erlu fyrir að vera svona óþekk að vera að flækjast á Sprengisandi um miðjar nætur ;)

Þannig er nú það. Svo má þess til gamans geta að við Gunnar erum búin að vera saman í ár á morgun. Ótrúlegt hvað tíminn líður...og það er eintóm hamingja ennþá :haha: En ég ætla að láta þetta duga í bili og klára vinnudaginn minn.

Laterz.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 12:42:28 / jonahlin

Það var látið vaða...:D

 

Það mætti teljast heimskulegt að keyra á hinn enda landsins fyrir einn dag af skemmtun en það var það sem að ég gerði um helgina. Jamm, eftir allt volæðið yfir því að komast ekki á Seyðisfjörð alla síðustu viku þá var bara ákveðið að gefa skít í þetta allt saman og láta vaða með Gyðu vinkonu. Gyða var strandaglópur í Reykjavík eins og ég og við ákváðum að láta vaða eftir vinnu á föstudaginn. Þegar að vinnudagurinn var búinn brunuðum við af stað austur á methraða og mættum fáum á leiðinni...að frátöldum fuglunum sem að ákváðu að enda líf sitt á framrúðunni minni og rollunni sem að stóð úti á miðjum vegi og haggaðist ekki þó að ég brunaði fram hjá henni á 120 km hraða...þá mættum við eiginlega engum. Ármann þarf líka á baði að halda eftir þetta ferðalag...hann sér varla út fyrir flugum :P Anyways, við vorum komnar á áfangastað rúmlega tvö á aðfaranótt laugardags og í stað þess að vera skynsamar og fara að lúlla eftir þetta ferðalag fórum við og hittum liðið í Herðubreið. Herðubreið er s.s. íþróttahús bæjarins og þar var djammið þetta kvöldið. Ég hitti þarna alla blessuðu sveitadurgana mína sem að mér þykir svo gaman að hitta og svo var nú Klemens minn þarna, blessaður eiginmaðurinn ;) Við vorum nú ekki lengi þarna, við Gyða enda frekar slappar eftir ferðalag dagsins.

Á laugardeginum vaknaði ég um hádegisbil og var með frekar mikinn hausverk sem að ég ákvað að væri út af of stórum skammti af fersku lofti. Ég át bara eina pillu eða svo og fór svo með Gyðu og Sirrý að sækja Gunnar, kærasta Sirrýar á flugvöllinn á  Egilsstöðum og svo þurftum við Gyða að versla aðeins í Ríkinu í leiðinni. Þegar að heim var komið þá fórum við í Herðubreið til að tékka á hljómsveitum sem að voru þar. Það voru tónleikar allan daginn með hinum ýmsu hljómsveitum. Það sem að mér fannst mest spennandi voru hljómsveitirnar Ampop og Jeff who? Ég varð reyndar mjög spæld þegar að ég heyrði að Jeff Who? yrðu ekki á svæðinu þar sem að það væru veikindi í bandinu en lét það ekki á mig fá. Ég var aftur á móti rosalega hrifin af Ampop, þeir komu mér verulega á óvart. Ég hafði bara heyrt tvö lög með þeim en sé það núna að ég þarf að fjárfesta í diskinum þeirra. Þessir tónleikar stóðu frá 17.00 - 23.30 og þá átti að byrja ball með Todmobile. Ég sá mér ekki fært að vera í tónlistarhlustun samfellt frá 17.00 og fram eftir nóttu þannig að ég og Klemens fórum heim til hans og fengum okkur að borða dýrindismat sem að Stína tengdó eldaði oní okkur. Það er alltaf svo vel hugsað um mann í sveitinni :haha: Eftir matinn fórum við svo í party til Ingu vinkonu og  þar var nú  margt um manninn og mikið sukk og svínarí á þeim bænum. Eftir að einn vasi flaug í gólfið með stæl var liðinu sparkað út og strollan stefndi á Herðubreið á ballið með Todmobile. Eitthvað létu þau nú bíða eftir sér, Todmobile-arar...mér skildist að það hafi varla verið hægt að lenda á Egilsstöðum fyrir þoku. En ballið hófst að lokum við mikinn fögnuð viðstaddra. Það er ekki hægt að segja annað en að þau eru brillinat á balli, Andrea, Eyþór og co ;) Það var sungið og dansað af lífi og sál þar til að ballinu lauk og það var þreytt og sæl Jóna sem að gékk út af ballinu um miðja nótt ásamt uppáhalds Seyðisfirðingunum mínum :haha: Þess má nú geta að við Klemens áttum tveggja ára brúðkaupsafmæli á þessu LungA ;)

Ég svaf eins og grjót til klukkan hálf þrjú í gær og ég var fegin því...því að þá var heimkeyrslan framundan. Ég og Gyða tókum saman okkar hafurtask og kvöddum alla sem á vegi okkar urðu, þökkuðum fyrir góða helgi og mikla skemmtun, knús og kossar flugu í allar áttir. Ég lofaði Stínu tengdó að stoppa lengur á næsta ári...annað kemur ekki til greina, hvorki fyrir mig né hana né nokkurn annan ;) Það er bara ekki hægt að stoppa svona stutt í sveitinni. Á næsta ári verður Gunnar minn tekinn með líka. Ég hefði tekið hann með núna en hann var að steggja Stein, vin sinn á laugardaginn...en hann kemur með næst, það er á tæru ;) Klukkan var langt gengin í fimm þegar að við brunuðum af stað og gékk ferðalagið mjög vel og vorum við komnar til Reykjavíkur rétt fyrir eitt í nótt. Ég var reyndar úrvinda þegar að ég kom heim í gettóið og fleygði mér í fangið á Gunnari í sófanum heima. Við slökuðum aðeins á, hann nýkominn úr vinnunni og ég úr akstri dauðans. Svo skriðum við í rúmið og það slokknaði á mér nokkrum sekúndum eftir að ég lagðist á koddann ;)

Svo er ég mætt í vinnuna. Ég er ennþá frekar þreytt og ég vissi það svo sem fyrir helgi að ég yrði úrvinda í dag en það var þess virði. Ég hefði ekki viljað sleppa þessu og er Guðs lifandi fegin að ég lét vaða ásamt Gyðu :haha: Eitthvað var tekið af myndum þarna...ég læt þær vaða hingað inn fljótlega...og myndirnar frá Spáni líka! Bölvað kæruleysi er þetta í manni :P En jæja, þetta er orðið gott. Nú ætla ég að halda áfram að vinna :haha:

Laterz.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 14:23:29 / jonahlin

Update fyrir síðustu daga ;)

* Ég fékk mér ný gleraugu í vikunni. Ég hef ekki endurnýjað gleraugun mín í átta ár og því var kominn tími á það. Ég var farin að sjá svolítið í móðu í gegnum gömlu gleraugun en þessi nýju eru betri. Ég þarf reyndar að venjast þeim aðeins en það kemur. Svo eru þessi nýju meira áberandi en þessi gömlu...mér finnst þau bara flott sko ;)

* Ég ákvað að gera breytingu á hárinu á mér. Ég er búin að vera með sítt ljóst hár núna í lengri tíma og langaði að breyta til. Ég fór til Evu frænku minnar sem að sér um mitt hár alfarið og gékk út frá henni með stutt og dökkt hár. Heilmikil breyting þar en ég er bara sátt við þessa breytingu og Gunnar sömuleiðis. Fékk líka þessi svaka viðbrögð í vinnunni fyrir þessa stílbreytingu ;)

* Ég steig á vigt í vikunni og mér til mikillar mæðu þá hef ég þyngst slatta. Ég er ekki nógu hress með það enda vil ég nú ekki fara í sama farið og ég var í hér á árum áður. Þar með var ákveðið að reyna að taka á mataræðinu og fara jafnvel í göngutúra og slíkt. Ef þið lumið á einhverjum girnilegum og góðum hollustuuppskriftum þá megið þið láta þær flakka ;)

* Ég er miður mín yfir að komast ekki til Seyðisfjarðar um helgina. Ég hef farið á LUNGA (Listahátíð ungs fólks á Austurlandi) síðastliðin tvö ár og skemmt mér konunglega. En núna lítur út fyrir að ég komist ekki. Ég tékkaði á hvað flug fram og til baka kostar og það eru bara litlar 20.000 krónur. Hef ekki efni á því...og ekki hef ég efni á að keyra þar sem að allt liðið sem að ég þekki og ætlar á LUNGA er þegar farið á staðinn og ekki fer ég að keyra ein. Of kostnaðarsamt...þá gæti ég alveg eins flogið. Þetta er sem sagt of dýrt fyrir mig núna og ég er bara gráti næst :(

* Ég vildi að ég væri í fríi þessa dagana, núna þegar að sólin er loksins komin úr felum en þess í stað þá sit ég í vinnunni allan daginn ásamt starfsfélugum mínum og við horfum löngunaraugum út um gluggann og óskum okkur að vera í sólinni. Ég kemst þó í sólina eftir vinnu...verra gæti það verið ;)

Jamm, þetta er eiginlega allt og sumt sem að er að frétta í bili. Ég hlakka bara til helgarinnar og vona að það skíni sól á mig og alla aðra þegar að hið langþráða helgarfrí er í höfn. En ég ætla að láta þetta gott heita í bili og finna mér eitthvað sniðugt að gera í vinnunni svo að tíminn líði eitthvað ;)

Laterz.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 11:03:29 / jonahlin

Máttur súkkulaðikökunnar!

Það er mánudagur og ég er fersk í samræmi við það. Dagurinn byrjar rólega sem að er ágætt, heilasellan mín er hálfsofandi ennþá og símaeyrað mitt sömuleiðis ;) Ég hafði það nú notalegt og skemmtilegt um helgina, ég get ekki sagt annað.

Á föstudaginn fékk ég einhvern fiðring um miðjan daginn. Ég fékk gamalkunnan djammfiðring og vissi t.d. af því að það væri Sálarball um kvöldið á Nasa. Mér fannst það nú freistandi enda eru Sálarmenn hinir skemmtilegustu á böllum. Þetta blundaði í mér allan föstudaginn í vinnunni, ég var nokkuð viss um að ég gæti platað Klemens með mér um kvöldið. Jebb, ég var ákveðin í að druslast út um kvöldið. Þegar að leið að lokum vinnudagsins og ég var á heimleið kom þessi doði yfir mig...þessi "ég ætla að liggja í sófanum og gera ekki rassgat" fílingur sem að kemur iðulega yfir mig þegar að ég er búin að vinna. Ég velti þessu mikið fyrir mér alla leiðina heim og eftir því sem að  leiðin styttist í sófann því meiri varð letifílingurinn. Ég kom svo heim og sagði Gunnari að ég væri að velta þessu fyrir mér, að fara út um kvöldið. Honum fannst það hið besta mál enda hlyntur því að ég skelli mér í félagslífið þegar að hann er í aukavinnunni sinni. Ég keyrði hann í vinnuna og þegar við vorum komin á leiðarenda þá sagði ég honum að ég vissi ekkert hvar ég mundi enda...það yrði annað hvort sófinn eða djammið. Svo lá leiðin heim á ný og þá var letin í hámarki. Ég sá sófann í hyllingum og súkkulaðikaka var allt í einu komin í hyllinguna líka...og mjólkurglas með freistaði líka...sömuleiðis eitthvað nammi og svo var One Tree Hill og Batchelorette í sjónvarpinu.Það var mikil togstreita sem að átti sér stað á leið í gettóið...fara út...vera heima...Sálarball...súkkulaðikaka...hmmm...? Rétt áður en ég kom heim sveigði ég inn á planið hjá Kaskó, stökk inn og keypti súkkulaðiköku og nammi, brunaði svo heim, kom mér vel fyrir í sófanum og át á mig gat yfir One Tree Hill. Jebb, sófinn náði tökum á mér og svo má aldrei vanmeta mátt súkkulaðikökunnar. Mér fannst ég svikari með meiru. Mitt glæsta mannorð sem djammari dauðans var að fara í vaskinn og fyrir hvað...sófann og kökusneið! Mamma hringdi í mig um þetta leyti og var mjög hlynt því að ég væri bara heima í rólegheitum og afslöppun. Eftir samtalið við frú Höllu var ég á því líka, að ég væri kannski bara best geymd heima. Voru hlutirnir þá orðnir þannig... var ég bara orðin ein af þessum manneskjum sem að nennir engu um helgar? Var ég orðin gamalmenni eða hvað? Ætlaði ég að láta þennan endalausa slappleika minn gera þetta að verkum...að ég yrði bara "couch potato"??? Í þessum hugleiðingum hringdi Klemens í mig og tilkynnti mér að það væri nú smá samansafn af fólki heima hjá Gyðu vinkonu og að nærveru minnar væri óskað þar. Ég lét ekki segja mér það tvisvar. Mér var hálfflökurt af kökuáti þannig að það var eins gott að fara á skemmtistaði bæjarins og dansa kökusneiðina af sér. Ég reif mig á lappir, ruslaðist í sturtu, skellti mér í föt og klíndi á mig andliti og rauk út. Ég lét Gunnar vita að ég ætlaði út með liðinu og fannst honum það hið besta mál, hann mundi þá koma til Gyðu og sækja bílinn. Ég mætti til Gyðu, töluvert sprækari en ég hafði verið 90 mínútum áður og fólkið var hið hressasta sömuleiðis. Ég settist hjá þeim, fékk mér bjórsopa og spjallaði heilmikið, skálaði heilmikið líka og hló og brosti og var ánægð með að hafa drattast út. Gunnar kom svo eftir vinnu og sótti bílinn og settist aðeins niður með okkur áður en hann hélt heim á leið. Tíminn flaug svo áfram og áður en við vissum af var klukkan að detta í tvö. Við röltum þá út og röltum niður Laugaveginn í smá rigningarúða. Ég, Klemens og Þorsteinn urðum viðskila við hópinn og einhvers staðar á Laugarveginum urðum við Klemens viðskila við Þorstein líka. Við enduðum á Hressó fyrir rest. Klukkan var orðin of margt til að fara að borga sig inná Sálarballið en við skemmmtum okkur vel á Hressó engu að síður, dönsuðum og dilluðum okkur langt frameftir öllu :haha: Klukkan var svo farin að ganga sjö á laugardagsmorgun þegar að við lufsuðumst heim á leið. Ég kom heim og sá að Gunnar minn lá í sófanum...hann hafði sofnað yfir einhverri bíómynd. Ég var orðin hálf rænulaus af  þreytu en gat nú samt ýtt í hann og bent honum á að rúmið væri þæginlegra heldur en sófinn. Svo við röltum inn í rúm og ég held svei mér þá að ég hafi sofnað áður en ég náði að leggjast á koddann.

Ég vaknaði eftir fimm tíma svefn á laugardeginum. Ég hefði viljað sofa lengur en gat það einhverra hluta vegna ekki. Ég dröslaðist fram og í sófann enda fannst mér ég best geymd þar eftir allt skrallið nóttina áður og var líka dauðþreytt ennþá þó svo að ég gæti ekki sofið. Gunnar kom einnig í sófann og hélt mér félagsskap og við ákváðum að Scary Movie 4 væri viðeigandi afþreying þetta sinnið. Ég náði að horfa á hana og einn þátt af Prison Break áður en að það slokknaði á mér aftur...og ég svaf til klukkan sex. Þá fengum við okkur að borða og svo var það meira sjónvarpsefni. Ég fór ekki úr náttfötunum þann daginn, ég lá bara eins og slitti í sófanum og gerði lítið annað en að horfa á bíómyndir og þætti. Ég var alveg svakalega þreytt eftir daginn og kvöldið áður...ég hef líklega ekki orku í það að vaka heilu og hálfu sólahringana lengur. Alla vega fór meiri hluti laugardagsins í það að sofa. Ég sofnaði fyrir miðnætti og svaf í 12 tíma að ég held..."I'm getting too old for this!" - Roger Murtaugh.

Gærdagurinn var svo frekar rólegur líka. Ég fór reyndar úr náttfötunum þann daginn en við Gunnar vorum heima við þar til að hann fór að vinna klukkan sex. Þá fór ég til Boggu vinkonu í heimsókn. Hún eignaðist lítinn pjakk fyrir tveimur mánuðum síðan og ég var ekki enn búin að sjá gripinn! Ég brunaði í Mosfellsbæinn til hennar og Krissa, mannsins hennar og átti þar notalega stund með þeim og litla stúf sem að var algjört krútt :haha: Ég fór svo í kringum miðnætti að sækja Gunnar og þegar að heim var komið þá vorum við bæði svo vel útsofin að það var ekki annað í stöðunni en að horfa á svolítið af Prison Break...sem að gerði það að verkum að við fórum ekki að sofa fyrr en rúmlega þrjú í nótt og þar af leiðandi er ég fremur þreytt í dag. Ég fer þá kannski fyrr að sofa í kvöld ;)

Þannig var nú það. Ítarleg helgarskýrsla í þetta skiptið ;) Ég ætla að láta þetta gott heita í bili og koma mér að verki. Ég læt í mér heyra bráðlega ;)

Laterz.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 13:32:47 / jonahlin

Brunarústin Jóna

Mér tókst að brenna smá á Spáni. Ég var ótrúlega dugleg að bera á mig en samt tókst mér þetta. Ég brann svo sem ekki mikið, bara smá en samt á fáránlegustu stöðum í heimi. Ég brann á ristinni og á handabökunum. Þetta er bara asnalegt sko. Svona asnalegir staðir sem að maður gleymir að setja á sig krem. Hendurnar mínar eru þar af leiðandi eins og á níræðu gamalmenni...eða eins og þurrkaðar rúsínur...plús það að ég er með stórann og flottan marblett á vinstra handabakinu eftir lyfjagjöfina á föstudaginn. Frekar dópistaleg hendi sko ;)

Annars er allt gott að frétta. Helgin var með besta móti og var ég sérstaklega ánægð með laugardaginn. Fyrri part dags fór ég til Jódísar, vinkonu minnar sem að ég hitti alltof sjaldan. Elsa hafði hringt í mig á fimmtudaginn og athugað hvort að ég væri ekki til í að kíkja með henni og Nínu til Jódísar. Mér fannst það snilldarhugmynd enda hef ég hitt vinkonur mínar alltof lítið undanfarið. Við fórum til Jódísar á laugardeginum og bauð hún okkur upp á heilsupizzu og kjaftagang sem að var bara gaman eftir allan þennan tíma. Svo hafði ég boðið Dögg og Jóhönnu í mat og bjór um kvöldið þannig að þetta var sannkallaður vinkonudagur :haha: Við skemmtum okkur vel og vandlega um kvöldið, ég, Dögg og Jóhanna...það var mikið um trúnó þarna eftir því sem að leið á kvöldið. Svo fórum við í bæinn seint og síðanmeir og vorum á röltinu milli öldurhúsa bæjarins og sveifluðum okkur á dansgólfum með miklum tilþrifum ;) Það voru svo þreyttar konur sem að lufsuðust heim á leið um sex leytið á sunnudagsmorgninum. Ég er alltaf að komast betur og betur að því að ég er hreinlega of gömul í þetta núorðið...eða er þetta kannski bara veikindin? Hvað sem því líður þá fór sunnudagurinn í það að liggja í sófanum og horfa á endursýningar á skjá einum ;)

Í gær buðum við svo Óla og Unni til okkar í mat sem að endaði reyndar með því að við fengum okkur nokkra bjóra með matnum og sátum svo og spiluðum frameftir öllu eða þar til að Rockstar byrjaði. Við vorum öll sátt við Magna og hans frammistöðu. Það er alla vega dágóður slatti af fólki þarna sem að syngur álíka vel og breimandi köttur og á að fara sem allra fyrst úr þessari keppni. Magni er ekki kominn í þann hóp ennþá og ég vona að hann hangi inni sem lengst ;)

Anyways, ég ætla að fara að gera eitthvað sniðugt...áður en að ég geispa golunni. Maður á ekki að vaka svona lengi þegar að það er vinna daginn eftir ;)

Laterz.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 11:33:45 / jonahlin

Þríeikið snýr aftur...

Ég er að komast yfir þunglyndið sem að greip mig þegar að ég kom heim frá Spáni. Daginn eftir að ég kom heim þá var ég bara í fýlu og fannst frekar súrt að þurfa að koma heim, mér fannst allt í kringum mig grátt og ljótt og leiðinlegt. Það var bara ekki gott fyrir sálartetrið að koma heim úr sól og blíðu og í þessa grámyglu hérna heima. En núna, þegar að ég er byrjuð að vinna aftur og komin í hversdags rútínuna þá er þetta ekki svo slæmt ;) Ísland er ágætt svona annað slagið ;) Það má samt alveg fara að skína smá á landann...Hey God, I thought we were buddys...how about some sunshine over here...;)

Annars er mest lítið að frétta. Ég er auðvitað byrjuð að vinna aftur og svo er lyfjameðferð á morgun. Ég vona heitt og innilega að ég verði ekki veik af lyfjunum þar sem að ég er á leið út á lífið á laugardaginn með Jóhönnu og Dögg og er búin að hlakka mikið til þess. Við vorum þríeiki mikið hér áður fyrr, tókum gelgjuna saman með tilheyrandi dramaköstum, prakkarastrikum og strákadýrkun. Það voru óteljandi bíóferðir, göngutúrar, Kringlurúntar og rólusveiflur sem að við stöllur tókum saman...nú, og svo var líka bara setið í herbergjum okkar og spjallað saman um allt milli himins og jarðar, hlustað á tónlist, hlegið og grátið...ah, the good old days ;) Nú er svo komið að því, þríeikið snýr aftur og ætlar að mála bæinn rauðann! Mikið hlakka ég til að eyða einni kvöldstund með skvísunum mínum :haha:

Ég beið með óþreyju eftir Rockstar Supernova í gærkvöldi. Þegar að íslendingur er að taka þátt í svona dæmi þá bara verður maður að fylgjast með. Ég lagði mig fram við að halda mér vakandi. Ég var orðin þreytt klukkan tíu í gærkvöldi og þátturinn byrjaði ekki fyrr en á miðnætti. Ég afrekaði þó að hanga vakandi og horfa á allan þáttinn þó svo að augnlokin hafi verið ansi þung í restina. Magni litli stóð sig bara vel á sviðinu og ég hef tröllatrú á að hann komist eitthvað áleiðis í Rockstar...hversu langt verður að koma í ljós :haha:

En jæja, ég ætla að láta þetta gott heita núna. Ég læt nú heyra í mér bráðlega...eins og vant er ;)

Laterz.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 22:05:48 / jonahlin

Buenas dias Islandía :(

Við erum komin heim. Ég get ekki sagt að ég sé ánægð með að vera komin heim en svona er þetta bara. Ég vildi alveg vera á Spáni í sólinni og hitanum með kokteil í annarri og sígó í hinni niðri við strönd í stað þess að vera hér heima og horfa á grámygluna út um gluggann. En ég á góðar minningar frá þessari ferð engu að síður. Það var auðvitað frábært að hitta mömmu og Helgu og fjölskyldu hennar, við fórum hingað og þangað í skoðunarferðir og fórum líka í rennibrautagarð í Malaga. Ég afrekaði það samt að verða lasin úti, fékk hita og leiðindi og þar með var frestað Marokkóferðinni. Ég varð miður mín út af þessu þar sem að við fórum ekki heldur í Alhambra út af mínu ástandi og vældi þessi ósköp yfir þessu í veikindamóki mínu. Gunnar tók því samt með jafnaðargeði, knúsaði mig bara og hjúkraði mér og sagði að þetta væri ekkert mál, við færum bara næst.

Okkur tókst auðvitað að spreða ágætlega þarna úti, það var farið í verslunarleiðangra annað slagið. Ég held að við höfum tekið okkur tvo molldaga í ferðinni, einn hjá mömmu og einn hjá Helgu. Alla vega tókst okkur að fylla vel og vandlega upp í tómu töskurnar okkar...við afrekuðum meir'að segja smá yfirvigt. Ekkert alvarlega samt...við vorum ekkert rukkuð fyrir hana alla vega ;) Annars var þetta ekkert nema notaleg ferð, góð afslöppun í faðmi fjölskyldunnar. Ég var orðin frekar súr yfir að fara heim á laugardaginn og ákvað að draga Gunnar með mér niður á strönd til þess að drekkja sorgum okkar vegna yfirvofandi heimferðar í stærsta kokteil sem að ég fann. Ekkert fyllerí á okkur samt enda svo stapíl með meiru ;) Gærdagurinn var svo rólegur. Það var verslað eitthvað pínupons svona á síðustu stundu og svo fórum við út að borða með mömmu áður en við tókum stefnuna á flugvöllinn. Ég var hálfklökk þegar að ég kvaddi mömmu og hún var það líka...og svo laumuðust nokkur tár niður kinnarnar á leiðinni á völlinn. Þegar að á völlinn var komið þá kom í ljós að það var tveggja tíma seinkunn á fluginu okkar. Frábært...þannig að það var ekki annað að gera en að fá sér bjór og kjafta við aðra strandaglópa í flugstöðinni ;) Loks þegar að við komumst í vélina þá kom í ljós að sætin okkar voru ekki til í vélinni. Jamm...þetta var orðið soldið spes. Við vorum bókuð í sæti í vélinni sem að voru hreinlega ekki til staðar. Við Gunnar litum hvort á annað og tókum öllum þessum ósköpum sem hinti um að við ættum ekkert að fara frá Spáni. Þetta gékk þó allt vel að lokum og það fundust sæti fyrir okkur í vélinni með smá púsleríi hjá flugfreyjunum.

Þegar að við lentum í morgun var þetta fallega veður úti, sól og allt. Ég hugsaði með mér að þetta væri nú ekki svo slæmt, verra gæti það verið....svona eins og það er búið að vera síðastliðinn mánuð eða svo. En núna er sami suddinn kominn yfir og var þegar að við fórum út. Maður verður hálf sorgmæddur yfir þessu veðri...hreint út sagt þunglyndur bara. Það er vonandi að veðrið batni einhvern tímann bráðlega. Annars erum við Gunnar farin að gæla við þá hugmynd að flytja út...það hljómar mjög vel í eyrum okkar beggja :haha:

Anyways, ég ætla að hætta að blaðra þetta og spjalla aðeins við föður minn. Ég er stödd hjá honum eins og er og er kannski ekkert sérlega skemmtilegur gestur...að hlamma mér fyrir framan tölvuna og blogga...þannig að ég hætti hér með ;)

Laterz.


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 19:55:07 / jonahlin

Hola my amigos y amigas!

Við erum enn á Spáni, við skötuhjú. Við erum núna komin til Helgu og fjölskyldu í Frigiliana og var okkur að sjálfsögðu tekið vel hérna hjá þeim :) Við nutum okkar vel og vandlega hjá mömmu samt, fórum til Altea sem að er lítill og sætur listamannabær og skoðuðum okkur um þar. Svo fórum við líka til Alicante að skoða okkur um þar og fannst okkur það hin besta skemmtun. Föstudagurinn var svo sérlega skemmtilegur því að spánverjar fagna Jónsmessu líka og það með strandpartýi og brjálaðri flugeldasýningu. Þetta var örugglega flottasta sýning sem að ég hef séð og við vorum með besta útsýni í bænum af svölunum hennar mömmu :haha: Við keyrðum svo til Helgu á laugardaginn síðastliðinn og erum búin að vera í notalegheitum hjá þeim, fórum út að borða fyrsta kvöldið og fórum til Nerja og í mollið í dag. Planið var að fara til Alhambra í gær en mér tókst að verða veik þannig að ekkert varð úr þeirri ferð, því miður. Ég hef reyndar farið til Alhambra að skoða kastalann þar en ekki Gunnar. Mér fannst frekar leiðinlegt að geta ekki sleppt veikindunum í fríinu mínu en það er víst ekkert við því að gera. Svo var planið að fara til Marokko líka en við nánari athugun þá efast ég um að ég sé manneskja í það ferðalag. Helga var einmitt að segja mér að þetta væri frekar stíft prógram í  Marokkó og ég er ekki viss hvort að ég sé manneskja í að fylgja eftir ferðamannahóp þarna í steikjandi hita. Mér finnst ég vera frekar óskemmtilegur ferðafélagi núna en ég á svo góðan og skilningsríkan kærasta sem að segir bara að við getum gert eitthvað annað sniðugt í staðinn :) Hann er bara yndislegur :haha:

Þannig að ég er ekki viss hvað við gerum á komandi dögum en eitthvað skemmtilegt verður það enda er ekki hægt að leiðast hérna. Ég er aftur á móti hin rólegasta núna heima hjá Helgu á meðan að Gunnar og Kristjón eru á pöbbnum ásamt kolbrjáluðum spánverjum að horfa á leik Frakka og Spánverja...mikill hiti í fólkinu á pöbbnum, ég efast ekkert um það. Áfram Spánn! ;) Ég ætla að láta þetta gott heita í bili og spjalla við Helgu mína. Ég læt í mér heyra bráðum :haha:

Laterz.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 22:27:18 / jonahlin

Buenas dias :D

Buenas dias mi amigos! Jebb, við erum komin til Spánar. Þvílík hamingja. Hér er hiti og notalegt að vera. Það var reyndar lítið um sól í dag en það var allt í lagi, mér fannst það reyndar bara ágætt...að fá fyrsta daginn svona sólarlausann. Við vöknuðum fyrir hádegi og tókum því nú frekar rólega, fórum á ströndina og lágum þar ásamt Erlu, Indíönu, Elínu Klöru og Hjálmari Gauta. Svo röltum við aðeins meðfram ströndinni og skoðuðum í sölubása sem að voru þar. Svo fórum við heim til að sturta af okkur sandinn sem að við tókum með okkur af ströndinni og tókum okkur aðeins til í andlitinu áður en við fórum út að borða.

Við fengum þennan fína mat á veitingastað rétt hjá heimili mömmu og sátum þar eftir matinn hin rólegustu og spjölluðum saman. Gunnar var reyndar farinn að iða þarna þar sem að leikur á milli Spánar og Túnis var í gangi og hann langaði að sjá restina af honum. Hann stakk sem sagt af ásamt Hjálmari en við kvenþjóðin röltum aðeins á götumarkaðinn og í gegnum tivolíið. Það var reyndar alveg snilld að sjá stemninguna í kringum boltann. Annað hvert kaffihús og veitingahús var pakkað af stuðningamönnum Spánar og allt ætlaði um koll að keyra þegar að mörkin komu hvert af öðru. Þvílík fagnaðarlæti! Svo þegar að leikurinn var búinn þá fyrst byrjuðu lætin. Þá var skotið upp flugeldum frá tívolíinu og menn brunuðu niður á strönd til að fagna enn meir. Svo voru aðrir sem að brunuðu í bílinn sinn og keyrðu "Laugaveginn" með spænska fánann út um gluggann og flautandi eins og óðir menn. Það var bara gaman að sjá þetta...þeir eru einmitt nýhættir að flauta um göturnar ;) Þetta er svo skemmtilegt og ólíkt því sem að maður er vanur heima. Við ákváðum alla vega að taka þátt í þessu næst. Næsti leikur er 24. júní og þá ætlum við að planta okkur á pöbb með spánverjunum og láta eins og vitleysingar fyrir hönd Spánar ;)

En hér ætla ég að hætta enda klukkan orðin margt og við erum að fara í road trip á morgun. Ég læt í mér heyra bráðum :haha:

Laterz.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 00:53:31 / jonahlin

Einn dagur til stefnu

Einn dagur til stefnu.Siestan fer að hefjast. Eftir einn og hálfann sólahring þá verð ég á Spáni. Tilhlökkunin er svakaleg. Hitta fjölskylduna, sjá til sólar, hafa það notalegt, vera í afslöppun. Ah, það verður gott að komast aðeins frá Íslandi :haha:

Annars er undirbúningur fyrir ferðina búinn að vera þónokkur. Þar sem að maður á ættingja úti þá vilja þeir auðvitað fá íslenskan varning til sín. Eftir vinnu fór ég í Hagkaup og verslaði fyrir Helgu og mömmu. Þær voru með ákveðinn óskalista sem að ég hafði með mér í búðina og verslaði allt sem að þær vildu. Ég greip með mér eitt stykki bleikann fíl líka, þar sem að það er 17. júní á morgun þá fannst mér það viðeigandi. Hver vill ekki eiga uppblásinn bleikann fíl? Ég mun þó eflaust sjúga úr honum lífið á morgun og tala eins og strumpur fyrir vikið. Jebb, maður er ekki þroskaðari en þetta ;)

Svo er nú slatti sem að þarf að gera á morgun. Ég á eftir að þrífa íbúðina og pakka, Gunnar á eftir að pakka líka og svo er hann að syngja með kórnum á morgun. Svo er okkur boðið í mat hjá tengdó, ég þarf að koma við í apóteki og eflaust eitthvað fleira. Svo er maður auðvitað með áhyggjur af að gleyma einhverju. Afslöppunin hefst sem sagt ekki fyrr en við erum komin út þó að fríið hafi byrjað seinni part dagsins í dag ;) En við lifum það af :haha:

Jæja, ég ætla að láta þetta gott heita í bili. Ég ætla að leggjast í sófann í smá afslöppun áður en ég skríð í bólið ;) Ég læt í mér heyra frá Spáni ;)

Adios amigos y amigas ;)

Laterz.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 14:59:13 / jonahlin

#10.000

Tíu þúsundasti blogg-gestur minn fær koss á kinn og bjór á næsta djammi ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan